Íbúð með tveimur svefnherbergjum
Nýuppgerð, með útsýni yfir bæinn og Café Berlin á jarðhæð.
Þakíbúð Deluxe er með svölum sem snúa að Ráðhústorginu og dásamlegu útsýni yfir Vaðlaheiði og Pollinn. Hún er heimilisleg og notaleg, fallega innréttuð, með tveimur svefnherbergjum og svefnsófa í stofu og rúmar sex manns með góðu móti. Vönduð rúmföt, fullbúið eldhús og miðlæg staðsetning gera það að verkum að þér líður eins og heima hjá þér.
Stofa, borðkrókur, tvö svefnherbergi, eldhús og sérbaðherbergi með þvotta- og straubúnaði. Útsýni yfir bæinn til Vaðlaheiðar og Pollsins. Café Berlin er á jarðhæðinni.
Einnig innifalið: Þurrkari · Straujárn og strauborð · Gólfhiti · Útsýni yfir Vaðlaheiði og Pollinn
Rúmar 6. Tvö tveggja manna svefnherbergi og svefnsófi.
Sjálfsinnritun frá kl. 17:00 og útritun fyrir kl. 10:00. Leiðbeiningar um innritun berast í tölvupósti nokkrum dögum fyrir komu. Frítt þráðlaust net.
Café Berlin á jarðhæðinni býður upp á morgunverð og hádegisverð. Hægt er að panta morgunverð fyrir fram í síma 661 0661.
96 m²
Nýuppgerð, með útsýni yfir bæinn og Café Berlin á jarðhæð.
Pláss fyrir allan hópinn, með eigin þvottahúsi.
Nýuppgerð, með þvottavél, þurrkara og fataherbergi.
Acco Luxury Apartments, Skipagata 2 & 4, 600 Akureyri